433

Messi tjáir sig um ásakanir um framhjáhald með sjónvarpskonu - Tók viðtal við hann á dögunum

Mynd
Messi og Martinez.

Lionel Messi og eiginkona hans, Antonela Roccuzzo, hafa stigið fram til varnar argentínsku sjónvarpskonunni Sofi Martinez eftir orðróa um meint ástarsamband hennar og Messi.

Orðrómurinn hefur verið á kreiki frá því á HM árið 2022 en eftir sigur argentíska landsliðsins á Grænhöfðaeyjum í 32-liða úrslitum á mótinu í ár gerði Messi góðlátlegt grín að sögusögnunum í viðtali við Martinez.

„Þegar ég horfi á þig spyr fólk af hverju ég sé að horfa á þig. Og þegar ég heilsa þér spyr það af hverju ég sé að heilsa þér,“ sagði Messi við Martinez sem svaraði: „Þetta er allt saman lygi.“

Martinez hefur einnig greint frá því að Antonela hafi sent sér skilaboð þar sem stóð: „Sofi, hafðu engar áhyggjur, hunsaðu þessa vitleysu.“

Martinez hefur áður sagt að orðrómarnir hafi haft áhrif á fjölskyldu sína og að hún telji sig hafa orðið fyrir barðinu á þeim vegna þess að hún er kona.