433

Fór mannavillt og hóf skothríð á bíl knattspyrnumanns

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Images

Knattspyrnumaðurinn Divine Lunga slapp ómeiddur eftir að skotið var á bíl hans í Jóhannesarborg á sunnudag.

Samkvæmt suðurafrísku lögreglunni er málið rannsakað sem tilraun til manndráps. Enginn hefur þó verið handtekinn.

Samkvæmt The Citizen var Lunga á leið í kirkju ásamt yngri bróður sínum þegar óþekktur maður hóf skothríð á bifreið þeirra í hverfinu Hillbrow. 

Talið er að árásarmaðurinn hafi ranglega haldið að Lunga væri óeinkennisklæddur lögreglumaður.

Lunga, sem er 31 árs gamall varnarmaður, leikur með Mamelodi Sundowns og landsliði Simbabve. Hann hefur leikið 21 A-landsleik fyrir heimaland sitt og varð Afríkumeistari félagsliða með Mamelodi Sundowns í maí.

Hvorki félagið né leikmaðurinn hafa tjáð sig opinberlega um árásina.