Mostafa Ziko, leikmaður egypska landsliðsins, segir dómgæsluna hafa hallað á liðið í 3-2 tapi gegn Argentínu í 16-liða úrslitum HM í gær.
Egyptar voru 2-0 yfir þegar um stundarfjórðungur var eftir en Argentína sneri leiknum við á ótrúlegan hátt. Zico telur dómgæsluna hafa ráðið úrslitum og hélt því fram að það hefði verið rangtað dæma mark sitt í stöðunni 1-0 af í VAR og vildu Egyptar þá fá vítaspyrnu skömmu áður en Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið.
„Dómarinn var ekki góður, hann var ósanngjarn. Það er eins og úrslitin hafi verið ákveðin fyrirfram. Við vorum 2-0 yfir en hann hélt áfram að dæma gegn okkur. Til hamingju með enn einn heimsmeistaratitilinn, Argentína,“ sagði Zico grátandi eftir leik.
Hossam Hassan, landsliðsþjálfari Egypta, tók í sama streng á blaðamannafundi eftir leik. Sagði hann argentíska liðið hafa beitt dómarann þrýstingi og að bikarinn ætti greinilega að enda hjá þeim.