433

Hvetur eftirsóttan leikmann til að velja Liverpool

Mynd
Getty Images

Joe Cole, fyrrverandi leikmaður Liverpool og Chelsea, telur að Yan Diomande ætti að velja Liverpool fremur en Paris Saint-Germain í sumar.

Diomande, sem er 19 ára og leikur með RB Leipzig, hefur verið sterklega orðaður við bæði félögin. Nýlegar fréttir hafa hins vegar bent til þess að hann sé líklegri til að færa sig til Parísar.

„Ekki fara til PSG. Farðu til Liverpool. Þar er pláss fyrir þig í liðinu og félagið þarf á leikmanni eins og þér að halda. PSG þarf hins vegar ekki á neinum að halda,“ segir Cole.

Diomande átti frábæra leiktíð með Leipzig og kom að 23 mörkum.