Klámstjarnan þekkta Mia Khalifa hefur vísað á bug orðrómum um að hún hafi átt í ástarsambandi við Julian Alvarez.
Sögusagnir um meint samband þeirra fóru á kreik árið 2024 í argentínskum og ítölskum miðlum, þrátt fyrir að engar staðfestar heimildir styddu þær.
Alvarez, sem varð heimsmeistari með argentíska landsliðinu árið 2022, hefur lengi verið í sambandi með Maria Emilia Ferrero.
„Til að taka af allan vafa er ég ekki að deita neinn. Og ef ég væri að því, þá yrði það alls ekki einhver sem væri ekki nógu gamall til að muna hvar hann var 11. september,“ skrifaði Khalifa.
Með því vísaði hún til hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum árið 2001 en Alvarez var þá aðeins um eins og hálfs árs gamall.
Alvarez hefur aldrei tjáð sig opinberlega um sögusagnirnar og ekkert hefur bent til þess að nokkuð hafi verið til í þeim. Hann og Ferrero eiga barn saman.