433

Egill Helga segir „skrípaleikinn“ bara hafa skemmt fyrir - Finnur til með þessum aðilum

Mynd
Egill Helgason

Egill Helgason kveðst finna til með landsliðsmönnum Bandaríkjanna í kjölfar útspils Donald Trump Bandaríkjaforseta og Gianni Infantino, forseta FIFA.

Bandaríkin féllu úr leik í 16-liða úrslitum á HM á heimavelli með slæmu 1-4 tapi gegn Belgíu í nótt. Öll umræða fyrir leik snerist um Folarin Balogun, lykilmann bandaríska liðsins.

Balogun átti að taka út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Bosníu í 16-liða úrslitunum. Trump hringdi hins vegar í Infantino og bað um að leikbannið yrði endurskoðað. Var því frestað um eitt ár.

Balogun gat ekki komið í veg fyrir tap síns liðs og hefur fjaðrafokið í kjölfar ákvörðunar FIFA án efa haft áhrif á undirbúning liðsins.

„Infantino og Trump gerðu bandaríska liðinu engan greiða með skrípaleiknum um rauða spjaldið. Belgíska liðið var einfaldlega í öðrum kassa en hið bandaríska. 

En maður hefur samúð með bandarísku leikmönnunum - þeir lentu í miðjunni á pólitískum hráskinnaleik. Áttu enga sök á því,“ skrifar Egill um málið á Facebook.

Hann hrósar einnig bandarískum stuðningsmönnum.

„Svo er annað sem vekur athygli og það er reyndar þekkt – hversu prúðir bandarískir áhorfendur eru á íþróttakappleikjum.“