433

Búinn að semja við Englandsmeistarana

Mynd
Mynd/Getty

Arsenal er við það að ganga frá samningi við markvörðinn Illan Meslier, sem kemur á frjálsri sölu frá Leeds.

Samkvæmt BBC er samkomulag í höfn og Meslier var á æfingasvæði Arsenal í gær þar sem hann gekkst undir læknisskoðun og gekk frá lokaatriðum samningsins.

Meslier, sem er 26 ára gamall, missti sæti sitt sem aðalmarkvörður Leeds á síðustu leiktíð. Samningur hans rann út í sumar og Arsenal fær hann því frítt.

Arsenal fór á markaðinn í leit að markverði þar sem óvissa er um framtíð varamarkvarðarins Kepa Arrizabalaga.

Miðað við núverandi stöðu verður Meslier þriðji markvörður liðsins á eftir David Raya og Kepa. Það gæti breyst ef Spánverjinn fer.

Koma Meslier þýðir jafnframt að ungi markvörðurinn Tommy Setford verður lánaður frá Arsenal á komandi tímabili.