433

Belgi í viðræðum um að taka við enska liðinu

Mynd
Getty Images

Burnley á í viðræðum um að ráða Nicky Hayen, núverandi stjóra Genk.

Samkvæmt fréttum er Hayen líklegastur til að taka við af Scott Parker, sem lét af störfum í apríl. Viðræður við Genk standa yfir en samkomulag hefur ekki enn náðst.

Burnley hafði áður reynt að ráða Craig Bellamy, landsliðsþjálfara Wales, en þær viðræður runnu út í sandinn. Þá er einnig sagt að Rob Edwards hafi hafnað félagsinu.

Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og leikur því í B-deildinni á komandi tímabili.