Folarin Balogun hefur í fyrsta sinn tjáð sig um umdeilda ákvörðun FIFA að fresta leikbanni hans um ár svo hann gæti spilað leik Bandaríkjanna gegn Belgíu í 16-liða úrslitum HM í nótt.
Balogun fékk rautt spjald í 32-liða úrslitunum gegn Bosníu en varð fyrsti leikmaður í sögu HM til að sleppa við bann í leiknum á eftir. Donald Trump Bandaríkjaforseti bjallaði í Gianni Infantino, forseta FIFA, og fékk banninu að lokum hnekkt.
Balogun sagði að hann hefði átt von á umræðunni sem skapaðist.
„Þegar svona ákvörðun er snúið við er auðvitað ljóst að hún verður umdeild. Það kom mér því ekkert sérstaklega á óvart. Mitt hlutverk sem leikmaður er einfaldlega að fara inn á völlinn og einbeita mér að mínu verkefni,“ sagði Balogun eftir 1-4 tap gegn Belgíu í nótt. Bandaríska liðið er þar með úr leik.
Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, sagði að Balogun hefði komið til sín eftir leik og rætt málin.
„Hann ber enga sök á þessu og það sagði ég honum. Ég kunni vel að meta að hann skyldi koma og tala við mig,“ sagði Garcia.