Arsenal er sagt hafa forskot á Liverpool í baráttunni um mexíkóska táninginn Gilberto Mora.
Samkvæmt miðlum þar í landi hefur Arsenal lagt fram betra tilboð en Liverpool í þennan 17 ára gamla sóknarsinnaða miðjumann, sem vakti mikla athygli með mexíkóska landsliðinu á HM, hvar hann spilaði stóra rullu þrátt fyrir ungan aldur.
Mora leikur með Club Tijuana í heimalandinu og sló fyrst í gegn aðeins 15 ára gamall. Hann varð yngsti leikmaður í sögu félagsins til að leika fyrir aðalliðið og jafnframt yngsti leikmaðurinn til að leggja upp mark í mexíkósku úrvalsdeildinni.
Búist má við frekari tíðindi af framtíð Mora á næstunni, en bæði Arsenal og Liverpool hafa mikinn áhuga á að fá þennan efnilega leikmann í sínar raðir.