433

UEFA baunar á FIFA - Grafið sé undan trúverðugleika heimsmeistaramótsins

Mynd
Getty Images

UEFA hefur gagnrýnt harðlega ákvörðun FIFA um að fresta leikbanni Folarin Balogun, lykilmanns bandaríska landsliðins, sem hann átti sjálfkrafa að taka út eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu á dögunum.

Dómurinn í leiknum þótti ansi harður en ákvörðun FIFA, sem tilkynnt var um í gær, er fordæmalaus. Samkvæmt helstu fréttamiðlum hringdi Donald Trump Banaríkjaforseti í forseta FIFA, Gianni Infantino, áður en ákvörðunin var tekin og beitti sér fyrir því að banni Balogun yrði frestað svo hann gæti mætt Belgíu í 16-liða úrslitum í nótt. 

UEFA segir ákvörðunina „fordæmalausa, óskiljanlega og óréttlætanlega“ og telur að með henni hafi FIFA grafið undan trúverðugleika mótsins.

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, tók í sama streng eftir sigur á Mexíkó í nótt.

„Hvar byrjar þetta og hvar endar þetta? Hver ákveður hvaða rauðu spjöld eru felld niður og á hvaða forsendum?“ sagði Tuchel og kvaðst vilja sjá samræmi í dómgæslunni, en þess má geta að leikmaður hans, Jarell Quansah, fékk rautt spjald gegn Mexíkó.

Fyrrverandi forseti FIFA, Sepp Blatter, hefur einnig gagnrýnt Infantino og FIFA harðlega. Hann sagði að „ekki mætti fella niður leikbönn með pólitískum símtölum“.