433

Trump staðfestir að hann hafi heyrt í FIFA - Vissi ekki að rautt spjald leiddi til leikbanns

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi farið fram á það við FIFA að endurskoða eins leiks bann Folarin Balogun á HM.

Balogun fékk rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu og átti upphaflega að taka út leikbann gegn Belgíu í 16-liða úrslitum. 

FIFA frestaði hins vegar banninu um tólf mánuði, gerði það í raun skilorðsbundið, og gerir honum þannig kleift að spila leikinn, sem fram fer á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma.

„Ég hélt að þetta rauða spjald skipti ekki svo miklu máli en svo heyrði ég að hann gæti ekki spilað næsta leik. Ef þetta hefði komið fyrir annan leikmann hefði það verið ósanngjarnt en ef þeir taka okkar besta leikmann, eða þar um bil, er það ótrúlega ósanngjarnt.

Það er eitt að refsa leikmönnum í einum leik, en að refsa einhverjum í leik sem hefur ekki farið fram er verulega óréttlátt, þú getur ekki gert það. Þess vegna hafði ég samband við FIFA og bað þá um að endurskoða leikbannið,“ sagði Trump fyrir skemmstu, en tók fram að hann hafi aðeins farið fram á endurskoðun, ekki að banninu yrði endilega hnekkt. 

Þess má geta að Belgar hafa áfrýjað ákvörðun FIFA og vilja að leikheimild Balogun fyrir leik kvöldsins verði dregin til baka.