Harry Kane var nánast raddlaus eftir 3-2 sigur Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM í nótt.
Enska liðið fagnaði sigrinum með stuðningsmönnum sínum og söng lagið Wonderwall með Oasis af miklum krafti. Þegar Kane mætti síðan í viðtal við BBC átti hann erfitt með að koma upp orði.
„Röddin er farin. Þetta var geggjaður leikur. Ég var rétt í þessu að syngja og get varla talað,“ sagði fyrirliðinn og hló.
„Allt virtist vera á móti okkur en við fundum leið. Ég er eiginlega orðlaus, ég get varla talað.“ Mynband af þessu er hér að neðan.
England mætir Noregi í 8-liða úrslitum HM.
One of the best post-match interviews you will EVER see! Rest up, Harry :) pic.twitter.com/twk8bhP2YK
— BBC Sport (@BBCSport) July 6, 2026