433

Orðaður frá West Ham eftir fallið - Þrjú lið í úrvalsdeildinni áhugasöm

Mynd
Getty Images

Chelsea ku hafa áhuga á Crysencio Summerville hjá West Ham.

Sögusagnir eru um að Chelsea hafi þegar hafa átt í viðræðum við West Ham um möguleg kaup. Einnig hafi komið til tals að leikmenn færu í hina áttina sem hluti af samningnum.

Summerville er einn af þeim leikmönnum sem líklegt er að yfirgefi West Ham í kjölfar fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni í vor. 

Fleiri félög fylgjas með gangi mála hjá Hollendingnum. Manchester United og Fulham eru nefnd í því samhengi.

Summerville gekk í raðir West Ham frá Leeds árið 2024 og á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við Hamrana. 

Hann er nýkominn af HM vestanhafs, þar sem hann lék með hollenska landsliðinu.