Belgíska knattspyrnusambandið hefur áfrýjað ákvörðun FIFA um að fresta eins leiks banni Folarin Balogun fyrir leik Belgíu og Bandaríkjanna í 16-liða úrslitum HM.
Belgíska knattspyrnusambandið segist ekki hafa fengið neina formlega skýringu frá FIFA á ákvörðuninni og gagnrýnir sambandið harðlega fyrir skort á upplýsingagjöf.
„Við eigum engra annarra kosta völ en að mótmæla leikheimild Balogun í þessum leik,“ segir í yfirlýsingu sambandsins.
Málið verður nú tekið fyrir af áfrýjunarnefnd FIFA og gæti niðurstaða legið fyrir áður en flautað verður til leiks á miðnætti á íslenskum tíma.
Belgíski landsliðsþjálfarinn Rudi Garcia sagði að sambandið væri ekki aðeins að verja belgíska landsliðið heldur trúverðugleika og siðferði knattspyrnunnar einnig.
Helstu fréttamiðlar segja að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, með það fyrir augum að fá banninu hnekkt.
Hvorugur hefur staðfest þetta og eins og segir hér ofar virðist upplýsingagjöf frá FIFA í málinu almennt af skornum skammti.