433

Nafntogaðir Íslendingar hneykslaðir - „Glataðasta sem ég hef séð lengi“

Mynd

Það er óhætt að segja að margir hafi ekki haft mikinn húmor fyrir framgöngu landsliðs Paragvæ gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum HM. 

Frakkland vann leikinn 1-0 en þurftu að hafa fyrir því. Mörgum var brugðið yfir leikstíl Paragvæ og hversu grófir leikmenn liðsins væru. Það sem vakti enn meiri furðu var að enginn þeirra hefði fengið svo mikið sem gult spjald í leiknum.

Töluverð umræða skapaðist um þetta á samfélagsmiðlum og nafntogaðir einstaklingar voru á meðal þeirra sem lögðu orð í belg. 

„Arnar Gunnlaugsson sagði um daginn að hann treysti sér ekki til að horfa á 90 mínútur af Paraguay í viðbót á HM. Hann hafði alveg rétt fyrir sér. Þetta er leiðinlegasta lið sem maður hefur séð spila á mótinu. Agalegt að sjá,“ sagði Egill Helgason til að mynda.

Jón Ólafsson tók í svipaðan streng. „Paraguay. Þetta er glataðasta landslið sem ég hef séð lengi. Fól og óþokkar og hundleiðinlegur fótbolti í ofanálag.“

Leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir er fegin að vera laus við Paragvæ úr mótinu. „Vá hvað ég er fegin að Frakkarnir eru komnir áfram! Gjörsamlega óþolandi lið, Paragvæ!“

Fleiri tóku til máls, eins og sjá má hér að neðan.