Cristiano Ronaldo átti í áhugaverðum orðaskiptum við blaðamann á fréttamannafundi fyrir leik Portúgals gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM, sem fram fer í kvöld.
Ronaldo benti á blaðamanninn Marcelo Bechler og sagði: „Ég skora á þig að koma með góða spurningu því ég veit að þér líkar ekki við mig.“
Bechler spurði þá hvernig það væri að spila á HM 41 árs gamall og Ronaldo svaraði um hæl:
„Það er erfiðast að tala við ykkur sem eruð ekki hrifnir af mér. Og þú ert einn þeirra, ég veit það,“ sagði Ronaldo.
Ronaldo staðfesti jafnframt að þetta yrði hans síðasta heimsmeistaramót. Sagði hann þá að hann hafi þurft að þola gríðarlega gagnrýni og að „fólk hafi reynt að drepa sig í 23 ár.“
Samskipti Ronaldo við Bechler eru hér að neðan.
🚨🫵🏼 Cristiano Ronaldo: “I know you don’t like me”.@b24pt 🎥 pic.twitter.com/03y0XSMsF1
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 5, 2026