433

Myndband: Óvenjuleg meiðsli Henderson - „Þetta lítur mjög illa út“

Mynd

Jordan Henderson meiddist í fagnaðarlátum eftir sigur Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM í nótt.

Henderson hefur aðeins spilað sex mínútur á mótinu og var ónotaður varamaður í leiknum í nótt. Liðið fagnaði vel og innilega eftir 3-2 sigur en miðjumaðurinn varð fyrir því óláni að detta þegar hann stökk yfir auglýsingaskilti. 

Þurfti að fara með Henderson af velli á börum í kjölfarið. 

„Ekki gott, alls ekki gott. Jordan datt og meiddi sig á úlnliðnum. Þetta lítur mjög illa út,“ sagði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands um meiðslin.

England mætir Noregi í 8-liða úrslitum HM.