Kylian Mbappe hefur fordæmt ummæli Celeste Amarilla, öldungadeildarþingmanns í Paragvæ, eftir að hún varð uppvís að kynþáttafordómum í garð franska stjörnunnar á samfélagsmiðlum.
Amarilla skrifaði ummælin eftir tap Paragvæ gegn Mbappe og félögum í franska landsliðinu í 16-liða úrslitum HM um helgina.
„Þú ert fyrirlitleg kona og óverðug embættis þíns. Með fordómum þínum og hreinum kynþáttafordómum hefurðu varpað skugga á frábæra frammistöðu Paragvæ á þessu heimsmeistaramóti,“ skrifaði Mbappe vegna málsins
Frakkland vann leikinn 1-0 og mætir Marokkó í 8-liða úrslitunum.