433

Manni færri sigldu Englendingar í 8-liða úrslit

Mynd
Getty Images

England er komið í 8-liða úrslit á HM eftir sigur á Mexíkó á Azteca-leikvanginum í Mexíkóbórg í nótt.

Jude Bellingham kom Englendingum yfir á 36. mínútu og ekki liðu tvær mínútur þar til miðjumaðurinn var búinn að skora annað mark sitt

Julian Quinones minnkaði hins vegar muninn fyrir Mexíkó skömmu fyrir hlé og því allt galopið fyrir seinni hálfleikinn.

Hann var ekki tíu mínútna gamall þegar Jarell Quansah fékk að líta rauða spjaldið fyrir glæfralegt brot. Það breytti því hins vegar ekki að Harry Kane tvöfaldaði forskot enska liðsins á ný skömmu síðar. 

Raul Jimenez minnkaði muninn á ný af vítapunktinum þegar rúmar tuttugu mínútur lifðu venjulegs leiktíma. Það var því nægur tími eftir fyrir fullmannað lið Mexíkóa að jafna leikinn gegn tíu mönnum Englands.

Allt kom þó fyrir ekki. Heimamenn fundu ekki jöfnunarmarkið og Jordan Pickford var öflugur í marki Englands. 

Lokatölur 2-3. Enska liðið mætir Noregi í 8-liða úrslitum á laugardagskvöld.