Nottingham Forest hefur tilkynnt um ráðninguna á Oliver Glasner, sem er nýr stjóri úrvalsdeildarliðsins. Tíðindin hafa legið í loftinu um þó nokkurt skeið.
Glasner tekur við af Vitor Pereira, sem var sagt upp störfum á dögunum. Hafði hann hjálpað Forest að halda sæti sínu í deildinni og fór hann með liðið í undanúrslit Evrópudeildarinnar.
Glasner lét af störfum hjá Crystal Palace að lokinni síðustu leiktíð. Gerði hann frábærlega með liðið, vann enska bikarinn í fyrra og Sambandsdeildina í ár.
Glasner er fimmti stjóri Forest á innan við einu ári.