Jude Bellingham hvatti enska stuðningsmenn til að halda áfram að fagna fram eftir nóttu eftir dramatískan 3-2 sigur Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM.
Bellingham var frábær í sigrinum og skoraði tvö mörk. Leikurinn átti að hefjast klukkan 1 um nótt að enskum tíma en var seinkað til 2 vegna veðurs. Yfirvöld leyfðu kráareigendum að hafa opið til 5 í tilefni dagsins
„Fáið ykkur eitt skot í viðbót og sendið ykkar yfirmanni skilaboð um að þið mætið ekki í vinnuna á morgun,“ sagði Bellingham brosandi í viðtali við BBC eftir leik.
England mætir Noregi í 8-liða úrslitum HM á laugardagskvöld.