Jordan Henderson missir að öllum líkindum af því sem eftir er af HM eftir að hafa meiðst í fagnaðarlátum í kjölfar 3-2 sigurs England gegn Mexíkó í nótt.
Samkvæmt The Athletic þarf Henderson að fara í aðgerð á úlnlið eftir að hafa dottið þegar hann stökk yfir auglýsingaskilti í kjölfar þess að leikmenn sungu lagið Wonderwall með stuðningsmönnum í stúkunni.
Henderson, sem spilaði ekki leikinn gegn Mexíkó og hefur raunar aðeins spilað sex mínútur á mótinu, var borinn af velli eftir fallið.
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari sagði eftir leik að meiðslin litu illa út og þessi tíðindi ýta undir það.