Arsenal er óvænt sagt með Aaron Wan-Bissaka á blaði yfir mögulega hægri bakverði á leikmannamarkaðnum í sumar.
Miðillinn Teamtalk heldur þessu fram. Englandsmeistararnir vilja auka breiddina í stöðunni og Wan-Bissaka er með mikla reynslu úr enska boltanum.
Kappinn er á mála hjá West Ham í dag en eftir fall liðsins úr úrvalsdeildinni í vor eru líkur á að hann horfi í kringum sig, þrátt fyrir að eiga fimm ár eftir af samningi sínum við Hamrana.
Wan-Bissaka, sem lék áður með Manchester United, er nýkominn af HM vestanhafs, en hann er landsliðsmaður Kongó þrátt fyrir að vera fæddur í Englandi.
Arsenal er einnig með fleiri hægri bakverði á blaði. Má þar nefna Tino Livramento hjá Newcastle og Ivan Fresneda hjá Sporting.