433

Fréttamaður RÚV fengið nóg - „Af hverju í andskotanum situr hann þarna?“

Mynd

Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, kveðst kominn með nóg af því sviðsljósi sem Alf-Inge Haaland, faðir Erling Braut Haaland, fær á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.

Norska landsliðið, einna helst Erling Braut Haaland, hefur slegið í gegn á mótinu og er komið í 8-liða úrslit eftir sigur á Brasilíu í gær. Sjónvarpsmyndavélarnar hafa reglulega beinst að Alf-Inge í stúkunni, þar sem hann situr gjarnan með hæst setta fólki Noregs. 

Mynd

„Haaland trylltur en í Guðs lifandi bænum ég get ekki pabba hans í eina sek í viðbót. Haldið þeim manni frá skjánum. Hvern sem er annan,“ skrifaði Jóhann léttur á samfélagsmiðilinn X

„Af hverju í andskotanum situr hann þarna við hliðiná prinsessunni? Hvar er pabbi Sander Berge? En Julian Ryerson? Alf-Inge, nei takk.“

Alf-Inge var sjálfur norskur landsliðsmaður og lék einnig í enska boltanum með Manchester City, Leeds og Nottingham Forest.