Franska landsliðið hyggst áfrýja gula spjaldinu sem Michael Olise fékk í 1-0 sigri á Paragvæ í 16-liða úrslitum HM.
Franska blaðið L'Equipe greinir frá þessu. Olise fékk spjald í leiknum eftir samstuð við Matias Galarza. Endursýningar sýna þó að dómurinn var strangur.
Verði gula spjaldið látið standa verður Olise í leikbanni í mögulegum undanúrslitaleik, fái hann annað gult spjald gegn Marokkó í 8-liða úrslitunum.
Þetta kemur í kjölfar þess að eins leiks banni Folarin Balogun, lykilmanns Bandaríkjanna, var hnekkt svo hann geti tekið þátt í 16-liða úrslitunum gegn Belgíu í kvöld.