Bradley Barcola, leikmaður Paris Saint-Germain, er sem stendur ekki til sölu, þrátt fyrir mikinn áhuga enskra stórliða.
Talksport segir frá þessu. Barcola hefur mikið verið orðaður við Arsenal og Liverpool í sumar, en bæði félög vilja bæta við sig kantmanni á markaðnum.
Frakkinn á ekki fast sæti í byrjunarliði Evrópumeistaranna en þrátt fyrir það sjá þeir hann sem mikilvægan hluta af liðinu eins og staðan er.
Talksport segir þó að Arsenal og Liverpool séu ekki hætt að eltast við kappann. PSG gæti enn bætt við sig kantmanni og staða Barcola þar með breyst. Í því tilfelli verða ensku félögin á tánum.