Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir það helsta í sumarútgáfu af Íþróttavikunni á 433.is.
Noregur er kominn í 16-liða úrslit á HM en það vakti athygli í lokaleik riðlakeppninnar að liðið hvíldi sína bestu menn gegn ógnarsterku liði Frakka.
„Ég er með eitt tuð varðandi Norðmenn, það er þessi Frakkaleikur þar sem þeir hvíla allt liðið sitt,“ sagði Helgi og útskýrði sitt mál.
„Ég held að Norðmenn geri sér nokkuð vel grein fyrir að þeir verði ekki heimsmeistarar. Til hvers viltu fara á HM sem norska landsliðið, er það ekki til að máta liðið við bestu landslið heims?
Ef þeir fara í undanúrslit eða eitthvað skal ég alveg fyrirgefa þeim, en mér fannst svo mikil synd að láta ekki reyna á þetta,“ sagði hann enn fremur.
„Þetta er fínn punktur, en ef við erum alveg heiðarlegir á besta lið Noregs ekki séns í Frakka í níu af hverjum tíu skiptum,“ sagði Hörður hins vegar.
Þátturinn í heild er hér, sem og á helstu hlaðvarpsveitum.