433

UEFA bannar öðru félagi að vera með

Mynd
Evrópudeildarbikarinn. Getty Images

UEFA hefur meinað tékkneska félaginu MFK Karvina að taka þátt í Evrópukeppni á næstu leiktíð.

Karvina hafði unnið sér inn sæti í umspili fyrir Evrópudeildina með því að sigra tékkneska bikarinn. En UEFA komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði komið að því að hafa áhrif á úrslit leikja og uppfyllti því ekki þátttökuskilyrði sambandsins.

Í kjölfarið hefur sætaskipan tékknesku liðanna í Evrópukeppnum verið endurskipulögð. Viktoria Plzen færist upp í umspil Evrópudeildarinnar, FC Hradec Kralové tekur sæti í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar og Jablonec færist inn í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Karvina er annað félagið á skömmum tíma sem UEFA útilokar frá Evrópukeppni vegna meintrar aðkomu að hagræðingu úrslita. Fyrir skemmstu var PFK Turan Tovuz frá Aserbaídsjan einnig sett í keppnisbann.