Áhrifavaldurinn, plötusnúðurinn og fyrirsætan Ivana Knoll lét vel í sér heyra þegar hún fylgdist með leik Króatíu og Portúgal í 32-liða úrslitum HM á dögunum.
Knoll, sem er þekkt fyrir að vera léttklædd í stúkunni og styðja króatíska landsliðið ötullega áfram, var að sjálfsögðu í Kanada á leiknum á fimmtudag.
Portúgal vann dramatískan 2-1 sigur, en mark var dæmt af Króötum í lok leiks vegna afar umdeildrar rangstöðu. Kom Knoll inn á þetta í færslu eftir leik.
„Ég er svo stolt af því að vera króatísk. Að minnsta kosti skorum við mörkin okkar á heiðarlegan hátt,“ skrifaði Knoll harðorð í færslu sinni.