Liverpool er enn að vega og meta hvort félagið eigi að reyna að kaupa Said El Mala frá Köln í sumar eða bíða fram á næsta ár.
Forráðamenn Liverpool eru sagðir mjög hrifnir af þessum 19 ára gamla kantmanni, sem skoraði 13 mörk og lagði upp 4 fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson og félaga í Köln í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Þrátt fyrir það er talið líklegra að Liverpool bíði með að gera tilraun til að kaupa El Mala þar sem félagið vill fyrst og fremst fá reyndari sóknarmann sem getur fyllt skarð Mohamed Salah strax.
Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain er sagður efstur á óskalistanum, en Arsenal fylgist einnig grannt með stöðu hans.