433

Víkingar pökkuðu Blikum saman í Kópavogi

Mynd
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd :DV/KSJ

Víkingur Reykjavík vann öruggan 4-1 útisigur á Breiðabliki í eina leik Bestu deildarinnar í kvöld og er nú með níu stiga forskot á toppi deildarinnar.

Gestirnir byrjuðu af krafti og Helgi Guðjónsson kom Víkingi yfir strax á 8. mínútu. Staðan var 0-1 í hálfleik en Víkingar tóku öll völd eftir hlé.

Aron Elís Þrándarson tvöfaldaði forystuna á 63. mínútu áður en Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnu sex mínútum síðar. Helgi bætti síðan við sínu öðru marki á 75. mínútu og kom Víkingi í 4-0.

Breiðablik náði að minnka muninn undir lokin þegar hinn ungi Arnar Bjarki Gunnleifsson skoraði en það breytti litlu. Víkingur styrkti stöðu sína verulega á toppnum á meðan Breiðablik situr áfram í fjórða sæti.