Raissa Bellini, ítölsk fyrirsæta og stjarna í skemmtanaiðnaðinum fyrir fullorðna, vakti mikla athygli meðal stuðningsmanna á Heimsmeistaramótinu þegar hún mætti á leik Úrúgvæ og Grænhöfðaeyja í Miami.
Bellini tók á móti stuðningsmönnum fyrir utan leikvanginn og gaf sér tíma til að taka myndir með þeim. Hún vakti sérstaklega athygli fyrir klæðnað sinn, en síðar skipti hún yfir í bol sem vakti einnig talsverða umræðu á samfélagsmiðlum.
Myndir og myndskeið af Bellini dreifðust hratt á netinu og skiptust netverjar í tvo hópa. Sumir hrósuðu henni fyrir að skapa stemningu í kringum mótið á meðan aðrir gagnrýndu framkomuna.
Bellini svaraði gagnrýninni á samfélagsmiðlum með mynd af sér þar sem hún skrifaði að hún hefði komist inn á leikvanginn þrátt fyrir athugasemdir annarra. „Hættið þessu væli," sagði Bellini.
Ítalía komst ekki á heimsmeistaramótið eftir tap gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspili og því hefur Bellini fylgst með mótinu sem hlutlaus stuðningsmaður.
Áður en hún hóf feril sinn í skemmtanaiðnaðinum starfaði Bellini í fimm ár sem flugfreyja á lúxussnekkjum, þar sem hún kynntist fjölmörgum þekktum einstaklingum og auðmönnum.
Viðvera hennar í Miami hefur án efa verið eitt af umtalaðri atvikum utan vallar á Heimsmeistaramótinu.