433

Hræðilegur endir á HM-kvöldi vinkvenna: „Þú verður að lifa með þessu það sem eftir er ævinnar“

Mynd

Tvær vinkonur í New Jersey voru keyrðar niður á gangbraut þar sem þær gengu heim í rólegheitum eftir að hafa horft á fótboltaleik í heimsmeistarakeppninni á laugardag. Létust þær samstundis.

Mariana Elizabeth Valverde Beltran, 58 ára, og Maria Isabel DeLosAngeles Salgado Ayala, 61 árs, voru að ganga yfir gatnamótin við Park Avenue og North 7th Street í Newark þegar ekið var á þær, að sögn saksóknaraembættis Essex-sýslu.

Mynd

Eftirlitsmyndavélar sýna atvikið hræðilega, þar sem ökumaðurinn, David J. Zapata-Vera, 26 ára, sést koma á fulla ferð yfir gatnamótin, keyra á konurnar með þeim afleiðingum að báðar takast þær á loft. 

Mynd

Eitt vitni fullyrti að Zapata-Vera hefði stigið á bensíngjöfina og ekið yfir gatnamótin meðan umferðarljósið var að skipta um lit.

„Ég veit ekki hvort hann var ölvaður, en hann gaf bensín og það er það sem gerist,“ sagði Manuel Candelaria við fjölmiðla.

 

 Konunum var ekið með hraði á háskólasjúkrahúsið í Newark þar sem þær voru úrskurðaðar látnar. Ættingjar kvennanna eru miður sín eftir andlát þeirra.

„Þú verður að lifa með þessu það sem eftir er ævinnar. Ég vona að viðkomandi finnist en fyrir þann einstakling er þetta eitthvað sem þú verður að lifa með það sem eftir er ævinnar, það er á samvisku þinni,“ sagði frændi Beltrans, Jeffrey Chacon. „Pabbi minn er er að reyna að hafa samband við alla í Ekvador, systur sínar og son sinn, til að tilkynna þeim um andlátin“ bætti hann við. 

Zapata-Vera, frá Newark, gaf sig fram við lögreglu á þriðjudag, þremur dögum eftir atvikið. Hann var ákærður fyrir tvö tilvik manndráps af öðru stigi, tvö tilvik yfir að yfirgefið vettvang umferðarslyss sem leiddi til dauða af öðru stigi og tvö tilvik yfir að hafa sett slasað fórnarlamb í hættu af þriðja stigi. Zapata-Vera er haldið í fangelsi í Essex-sýslu án tryggingar.