433

Framherjinn knái vekur athygli - Spilar fyrir Svíþjóð en með annan fána á skónum sínum

Mynd
Getty Images

Alexander Isak er að leika á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti með sænska landsliðinu en framherjinn hefur einnig vakið athygli fyrir sérstakt smáatriði á knattspyrnuskónum sínum.

Liverpool-maðurinn, sem er dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, er með fána Erítreu á hægri skó sínum til að heiðra uppruna fjölskyldu sinnar. Isak fæddist í Solna í Svíþjóð, en foreldrar hans fluttu þangað frá Erítreu.

Framherjinn skoraði sitt fyrsta mark á Heimsmeistaramóti þegar Svíar unnu Túnis 5-1 í fyrsta leik sínum. Í kjölfarið tapaði liðið með sömu markatölu gegn Hollandi, en á enn möguleika á sæti í 32-liða úrslitum fyrir lokaleik riðilsins gegn Japan.

Mynd

Í viðtali við Alan Shearer hefur Isak áður sagt að hann sé stoltur af rótum sínum.

„Þótt ég hafi alist upp í Svíþjóð var ég alltaf innan um stórt samfélag fólks frá Erítreu. Ég hef ekki heimsótt landið oft síðustu ár, en síðasta ferð mín var frábær reynsla,“ sagði Isak.

Hann hefur einnig heimsótt knattspyrnuskóla í Erítreu þar sem hann hitti fjölda ungra iðkenda sem líta á hann sem fyrirmynd.

Isak segir mikilvægt að sýna uppruna sínum virðingu og vonast til að geta veitt ungum knattspyrnumönnum innblástur bæði í Svíþjóð og Erítreu.