Íranska knattspyrnusambandið hefur farið fram á það við FIFA að regnbogatákn og önnur tákn tengd réttindabaráttu hinsegin fólks verði bönnuð á Heimsmeistaramótsleik Írans og Egyptalands í Seattle.
Leikurinn fer fram 26. júní og hefur skipulagsnefnd HM í Seattle kynnt daginn sem sérstakan „Pride Match Day“ í tengslum við Hinsegin daga. Ýmsir viðburðir verða haldnir í borginni af utanaðkomandi samtökum samhliða leiknum.
Samkvæmt frétt The Athletic hefur íranska knattspyrnusambandið sent FIFA formlegt erindi þar sem farið er fram á að engin tákn eða kynningar tengdar hinsegin hreyfingunni verði leyfðar á leikvanginum. Sambandið segir að virða verði trúarleg gildi og menningu bæði Írans og Egyptalands.
Talsmaður íranska landsliðsins sagði að afstaða landanna hefði verið kynnt FIFA með formlegum hætti og að vonast væri til að tekið yrði tillit til sjónarmiða beggja liða.
FIFA hefur hins vegar samkvæmt The Athletic ekki í hyggju að banna regnbogafána eða önnur slík tákn á leikjum mótsins.
Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur jafnframt tekið fram að leikurinn sé ekki opinber „Pride Match“. Hann sagði að viðburðirnir væru skipulagðir af utanaðkomandi aðilum í Seattle og tengdust ekki opinberri dagskrá heimsmeistaramótsins.