fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
433Sport

Mourinho samþykir fyrstu tvö kaup Real Madrid í sumar – Fleiri stórar ákvarðanir á borðinu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. júní 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

José Mourinho hefur samkvæmt erlendum miðlum þegar samþykkt tvö ný leikmannakaup hjá Real Madrid eftir að hann tók við stjórastarfinu fyrir tveimur vikum. Mourinho hefur þó ekki tekið formlega við.

Um er að ræða varnarmennina Ibrahima Konaté og Denzel Dumfries, sem sagðir eru vera á leið til félagsins. Mourinho er talinn hafa miklar mætur á báðum leikmönnum og telur þá styrkja liðið verulega fyrir komandi tímabil.

Þrátt fyrir þessi kaup er ekki útilokað að Real bæti við öðrum varnarmanni ef rétti kosturinn býðst á félagaskiptamarkaðnum síðar í sumar.

Einnig er greint frá því að Antonio Rüdiger hafi skrifað undir nýjan samning við félagið, á meðan Dani Ceballos virðist vera á útleið.

Þá er ákvörðun Nico Paz talin vera næsta stóra málið á borði forráðamanna félagsins, en framtíð unga miðjumannsins hefur verið mikið til umræðu undanfarnar vikur. Real hefur forkaupsrétt á honum frá Como.

Ljóst er að nóg er enn eftir af sumrinu og búast má við frekari breytingum á leikmannahópi Real Madrid á næstu vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn Ólafsson fyrrum landsliðsmaður er látinn

Þorsteinn Ólafsson fyrrum landsliðsmaður er látinn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fallegt augnablik í Bandaríkjunum í nótt – Messi virtist steinhissa þegar hann áttaði sig á því hver væri faðir Daníels

Fallegt augnablik í Bandaríkjunum í nótt – Messi virtist steinhissa þegar hann áttaði sig á því hver væri faðir Daníels
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Íranir með skýr skilaboð við komuna á HM

Íranir með skýr skilaboð við komuna á HM
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Kristinn og Valtýr harðorðir um stöðu mála – „Ég ætla bara að segja það hreint út, ég hef gríðarlegar áhyggjur“

Kristinn og Valtýr harðorðir um stöðu mála – „Ég ætla bara að segja það hreint út, ég hef gríðarlegar áhyggjur“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þorsteinn gerir upp undanriðilinn – „Náðum markmiðinu okkar“

Þorsteinn gerir upp undanriðilinn – „Náðum markmiðinu okkar“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stelpurnar okkar steinlágu gegn ógnarsterkum heimsmeisturum

Stelpurnar okkar steinlágu gegn ógnarsterkum heimsmeisturum