

Rayan Cherki hefur beðist afsökunar eftir óvenjulegt atvik í leik Manchester City og Liverpool í FA-bikarnum.
Cherki, sem er 22 ára, fór af velli á 71. mínútu og skipti þá um treyju við Hugo Ekitike, leikmann Liverpool. Þeir eru liðsfélagar í franska landsliðinu og höfðu áður heilsað hvor öðrum fyrir leik.
Eftir að hafa sest á varamannabekkinn klæddist Cherki Liverpool-treyjunni, sem vakti strax athygli. Starfsmaður Manchester City mun hafa bent honum á að þetta væri óviðeigandi og í kjölfarið fór hann úr treyjunni og lyfti hendinni í afsökunarbeiðni.
Atvikið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem margir undruðust hegðun leikmannsins. Ekitike fékk einnig gagnrýni fyrir að skipta um treyju áður en leiknum lauk.
Þrátt fyrir að um saklaust atvik hafi verið að ræða hefur það vakið umræðu um siðareglur og framkomu leikmanna, sérstaklega í leikjum milli stórra keppinauta eins og Manchester City og Liverpool en City vann 4-0 sigur.