

Það var hiti undir lok leiks Verona og Fiorentina í Serie A í dag og fékk Albert Guðmundsson að líta rauða spjaldið.
Fiorentina vann leikinn 0-1 og sótti mikilvæg þrjú sig í fallbaráttunni. Albert var að sjálfsögðu í byrjunarliðinu en upp úr sauð milli hans og leikmanna Verona, að því er virðist vegna stöðu hans á meðan þeir tóku aukaspyrnu.
Albert og Tomas Suslov rifu að lokum treyju hvors annars og fengu þeir báðir rautt spjald fyrir átökin.
Myndband af þessu er hér að neðan, en sigurinn færir Albert og Fiorentina 5 stigum frá fallsvæðinu, í bili hið minnsta. Lecce og Cremonese eiga leik til góða.
Tomás Suslov (Verona) & Albert Guðmundsson (Fiorentina) red cards 86′
by
u/Largvt in
soccer