

Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson hituðu vel upp fyrir Bestu deild karla í Íþróttavikunni.
Eins og mikið hefur verið rætt og ritað um er Víkingur með ansi stóran og góðan hóp í sumar.
„Það getur verið erfitt að vera með svona stóran hóp, sérstaklega í byrjun móts þegar Evrópukeppnin er ekki byrjuð. Fótboltamenn eru bara þannig að þeim finnst þeir alltaf eiga rétt á að spila,“ sagði Helgi.
„Þetta eru bara egóistar upp til hópa, kannski væru þeir ekkert á þessum stað annars. Það verður alveg prófraun fyrir Sölva að díla við það. En ég hef ekkert áhyggjur af Sölva og Kára ef einhver biður um fund,“ sagði Hörður.