

Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson hituðu vel upp fyrir Bestu deild karla í Íþróttavikunni.
Í umræðu um nýliða Keflavíkur var rætt um mikilvægi Muhamed Alghoul.
„Hann er frábær sóknarsinnaður miðjumaður sem gerir flesta í kringum sig betri. Hann var frábær í Lengjudeildinni í fyrra og manni sýnist á öllu að hann geti plummað sig í þessari deild,“ sagði Hörður.
„Hann þarf að eiga gott sumar ef sóknarleikur Keflvíkinga á að tikka.“