

Gianluigi Donnarumma, markvörður Manchester City og fyrirliði Ítalíua segir að hann hafi grátið eftir að ljóst varð að Ítalía missir af Heimsmeistaramótinu í þriðja sinn í röð.
Ítalía tapaði fyrir Bosníu í umspili og tryggði Bosnía sér þannig sæti á HM. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem aðeins Sandro Tonali skoraði fyrir Ítalíu og Donnarumma náði ekki að verja eina spyrnu.
Eftir leikinn tjáði Donnarumma sig á samfélagsmiðlum og lýsti miklum vonbrigðum. „Ég grét eftir leikinn. Ég grét vegna þess að við náðum ekki að koma Ítalíu þangað sem landið á heima,“ skrifaði hann.
Hann sagði einnig að sorgin væri sameiginleg með liðsfélögum og stuðningsmönnum. Ítalía verður þar með fyrsta fyrrum heimsmeistaraliðið til að missa af þremur HM í röð.
Úrslitin hafa haft mikil áhrif á leikmenn liðsins og vakið mikla umræðu í heimalandinu um stöðu landsliðsins og framtíð þess.