
Það er komið að því að opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og í 12. sæti er Keflavík.
12. sæti – Keflavík
Lokastaða í fyrra: 5. sæti í Lengjudeildinni (Unnu umspilið)
Besti leikmaðurinn: Muhamed Alghoul
Hefur eitthvað að sanna: Dagur Ingi Valsson
„Þeir eru nýliðar í Lengjudeildinni, fara upp í gegnum þetta umspil í Lengjudeildinni og rétt slefa inn í það. Þeir áttu ekki sérstakt sumar en toppuðu á réttum tíma og voru mjög sterkir þegar mest á reyndi,“ sagði Hörður Snævar Jónsson í Íþróttavikunni, hvar spáin var opinberuð.
„Það sem hræðir mann er hvernig þetta hefur verið þegar Keflavík hefur komið upp síðustu ár, þetta hefur ekki verið burðugt,“ sagði hann enn fremur.
„Þeir hafa verið nokkuð virkir á markaðnum og átt fínt undirbúningstímabil. Spár eru settar fram til að hafa gaman að þeim og Keflvíkingar þurfa að afsanna það að þeir séu eitthvað fallbyssufóður.“