
Það er komið að því að opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og í 11. sæti er ÍBV.
11. sæti – ÍBV
Lokastaða í fyrra: 9. sæti
Besti leikmaðurinn: Alex Freyr Hilmarsson
Hefur eitthvað að sanna: Omar Sowe
„Það er óvissa. Það er nýr þjálfari, mikið til breytt lið. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta nær allt að sjóðast saman,“ sagði Hörður Snævar Jónsson í Íþróttavikunni, þar sem spáin var opinberuð.
Þorlákur Árnason hætti með ÍBV eftir síðustu leiktíð, en hann náði frábærum árangri með nýliðana. Aleksandar Linta er tekinn við.
„Þeir voru flottir í fyrra og hársbreidd frá því að fara í efri hlutann, en talsverðar breytingar og við þurfum svolítið að sjá. Undirbúningstímabilið hefur verið snubótt og maður ekki séð heildstæða mynd af þessu.“