

Bayern Munich hefur engan áhuga á að fá Phil Foden frá Manchester City, samkvæmt þýskum miðlum.
Foden, sem er 25 ára gamall og lykilmaður hjá Manchester City, hefur verið orðaður við möguleg félagaskipti, en Bayern mun ekki fara í slíka fjárfestingu. Ástæðan er sögð vera sú að félagið hafi einfaldlega ekki fjárhagslegt bolmagn til að klára slíkan samning.
Englendingurinn er talinn einn öflugasti miðjumaður enska boltans og verðmiðinn á honum myndi líklega vera mjög hár, sem setur félög á borð við Bayern í erfiða stöðu.
Bayern hefur því ákveðið að horfa í aðrar áttir á félagaskiptamarkaðnum og forgangsraða öðrum leikmannakaupum.
Foden er í litlu hlutverki hjá City þessa dagana og virðist Pep Guardiola hafa misst trúna á honum.