

Roberto De Zerbi hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur og verður einn tekjuhæsti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar.
Ítalinn, sem tekur við af Igor Tudor, hefur skrifað undir langtímasamning og mun samkvæmt heimildum fá um 12 milljónir punda á ári. Það gerir hann að næsthæst launaða þjálfaranum í deildinni, á eftir Pep Guardiola sem fær um 20 milljónir punda á ári hjá Manchester City.
De Zerbi verður þar með hærra launaður en Mikel Arteta hjá Arsenal, sem fær um 10 milljónir punda á ári, þrátt fyrir að töluverður munur sé á stöðu liðanna í deildinni.
Þá er Unai Emery hjá Aston Villa með um 8 milljónir punda á ári, en Arne Slot er sagður fá um 6,6 milljónir punda.
Tottenham er í 17. sæti deildarinnar og bindur miklar vonir við að De Zerbi geti snúið gengi liðsins við.
