
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, vildi ekki ræða hvort enska treyjan væri of þung fyrir landsliðsmenn eftir 0-1 tap gegn Japan í vináttuleik í gær.
Eina mark leiksins skoraði Kaoru Mitoma snemma leiks og Englendingar áttu erfitt uppdráttar á Wembley. Mikil pressa er á liðinu fyrir HM vestan hafs í sumar en Tuchel vildi ekki kenna því um.
„Ég vil ekki fara út í þá umræðu. Við vitum hvað við viljum gera og hvernig við viljum spila,“ sagði hann.
England mætir Kosta Ríka og Nýja-Sjálandi í síðasta vináttulandsleikjaglugganum fyrir HM, þar sem liðið er í riðli með Króatíu, Gana og Panama.