
Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, er sagður hafa samþykkt að ganga í raðir Inter í sumar samkvæmt nokkrum miðlum á Ítalíu.
Vicario hefur ekki heillað heilt yfir með Tottenham eftir að hafa áður staðið sig vel með Empoli og Cagliari í heimalandinu.
Roberto De Zerbi er tekinn við sem stjóri Tottenham og er hans fyrsta markmið að reyna bjarga liðinu frá falli eftir erfitt tímabil, en mun hann svo skoða markverði í sumar.
Nokkrir eru þar á blaði og er James Trafford, varamarkvörður Manchester City, til að mynda nefndur til sögunnar í þeim efnum.