

Stuðningsmenn landsliðs Japans hafa hlotið mikið lof fyrir framkomu sína eftir sigur gegn Englandi á Wembley.
Japan vann leikinn 1-0 með marki frá Kaoru Mitoma í fyrri hálfleik. Enska liðið náði ekki að svara og skildu leikmenn Thomas Tuchel eftir með margar spurningar fyrir heimsmeistaramótið.
Það var þó ekki aðeins frammistaðan á vellinum sem vakti athygli. Eftir leikinn tóku japanskir stuðningsmenn sig til og þrifu stúkuna þar sem þeir sátu, söfnuðu rusli í poka og skildu svæðið eftir hreint.
Thank you @jfa_samuraiblue ❤️🤝 pic.twitter.com/M2OL30QGkZ
— Wembley Stadium (@wembleystadium) March 31, 2026
Myndband af þessu var birt á samfélagsmiðlum Wembley-leikvangsins með einföldum skilaboðum: „Takk fyrir“. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og margir hrósuðu stuðningsmönnunum fyrir virðingu og kurteisi.
„Þeir koma hingað, vinna okkur og þrífa svo eftir sig. Þetta er virðing,“ sagði einn aðdáandi, á meðan annar bætti við að margir gætu lært af þessari hegðun.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem japanskir stuðningsmenn vekja athygli fyrir slíkt, en þeir gerðu hið sama á HM 2022 í Katar.
Hreinlæti er stór hluti af japanskri menningu og er kennt frá unga aldri, sem endurspeglast greinilega á stórmótum sem þessum.