
Breyting hefur verið gerð á tímasetningu á leik ÍBV og FH í fyrstu umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum þann 12. apríl klukkan 13:00. Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 17:00.
Vegna lokunar í Landeyjahöfn varð að breyta leiktímanum.
Besta deildin hefst tveimur dögum áður, þann 10. apríl, með stórleik Íslandsmeistara Víkings og Breiðabliks.